|
Guðrún útskrifaðist úr Skolen for Boligindretning 1988 sem húsgagna og innanhússhönnuður, eftir það starfaði hún hjá Brúnás innréttingum í 3 ár. Guðrún hefur rekið sitt eigið hönnunarfyrirtæki síðan, eða frá árinu 1991. Árið 2007 tók hún sér ársleyfi og vann við uppsetningu á fyrirtæki sem sá um hönnun og vörusölu fyrir verktaka í byggingariðnaði í
Rúmeníu. Hún hefur hannað mörg heimili og fyrirtæki
hér á landi undanfarin ár. Guðrún leggur metnað sinn í
að samræma óskir og þarfir viðskiptavinarins og sína
eigin hönnun svo úr verði ein heild. |